Markmið og aðgerðir 2017 - 2018

Hér að neðan eru þau markmið og aðgerðir sem skólinn hefur samþykkt að leggja sérstaka áherslu á skólaárið 2017-2018

Megin markmið aðgerðaráætlunar

  1. Þróun þriggja anna kerfisins
  2. Innleiðing nýrrar námskrár
  3. Vinna áfram með kennslufræði og námsmat í takt við nýja námskrá
  4. Skólabragur í nýju námsumhverfi
  5. Hvetja til endurmenntunar, starfsþróunar og faglegs samstarfs

Þróun þriggja anna kerfisins

  • Nýta betur möguleika nýja kerfisins, t.d.:
    • með sveigjanleika í töflugerð
    • með útfærslu og hönnun á skóladeginum
    • með þróun umsjónarkerfisins
    • með fjölbreyttri nýtingu matsdaga
  • Útfæra útskrift í nýju kerfi

Innleiðing nýrrar námskrár

  • Ljúka vinnu við almennan hluta námskrár
  • Ljúka vinnu við áfangalýsingar námskrár
  • Setja brauta- og áfangalýsingar í Námskrárgrunninn
  • Stýrihópur stjórnenda og oddvita starfi áfram
  • Rýnihópar nemenda og kennara starfi áfram

Vinna áfram með kennslufræði og námsmat í takt við nýja námskrá

  • Áhersla á virkni og þátttöku nemenda í náminu
    • Hvetja nemendur til þess að taka ábyrgð á eigin námi
  • Áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og námsmat
    • Sérstök áhersla á að kynnast leiðsagnarnámi og -mati og innleiða það
  • Áhersla á að skapa öllum nemendum góð skilyrði til náms
    • Með fjölbreyttum kennsluaðferðum
    • Með því að huga að meðnámi t.d. lestri, gagnrýnni hugsun, félagsfærni og tjáningu
    • Með því að taka tilllit til reynsluheims þeirra og hugmynda
  • Hlusta á raddir nemenda
    • Við mat á skólastarfinu og með nemendakynningum

Skólabragur í nýju umhverfi

  • Ný heimasíða verður sett í loftið í september 2017
  • Hrinda í framkvæmd aðgerðaráætlun um varnir gegn brotthvarfi
  • Vinna með nemendum í takt við siðareglur um notkun snjalltækja í kennslustundum
  • Vinna áfram að bættu upplýsingaflæði
  • Útbúa handbók um námið fyrir forráðamenn nemenda
  • Halda áfram að bæta umgengni í og við skólann
  • Grænt bókhald og græn skref í ríkisrekstri

Endurmenntun, starfsþróun og faglegt samstarf

  • Starfendarannsóknir
  • Fræðslufundir í skólanum
  • Erasmus+ verkefni
  • Nord+ junior
  • Samstarf við Greve
  • Auk annarra endurmenntunarnámskeiða, þróunarverkefna og faglegs samstarfs sem starfsmenn taka þátt í.