Markmið og aðgerðir 2020 - 2021

Hér að neðan eru þau markmið og aðgerðir sem skólinn hefur samþykkt að leggja sérstaka áherslu á skólaárið 2020-2021

Megin markmið aðgerðaráætlunar

  1. Mótun skólabrags
  2. Þróun kennslufræði í takt við námskrá MS
  3. Faglegt samstarf, starfsþróun og endurmenntun
  4. Nám í MS
  5. Umhverfismál, stjórnsýsla og rekstur

Mótun skólabrags

  • Leita leiða til þess að móta félagsanda meðal nemenda á fjarnámstímum
  • Styðja við nemendur og forráðamenn þeirra við uppbyggingu fjölbreyttara félagslífs
  • Halda áfram að móta nýjar hefðir í MS
  • Vinna að bættri umgengni
  • Fylgja eftir aðgerðaráætlun um varnir gegn brotthvarfi

Þróun kennslufræði í takt við námskrá MS

  • Með því að byggja upp seiglu nemenda og hvetja þá til þess að taka ábyrgð á eigin námi
  • Með áherslu á virkni og þátttöku nemenda í náminu
  • Með áherslu á að skapa öllum nemendum góð skilyrði til náms, með:
    • fjölbreyttum kennsluháttum og námsmati
    • því að huga að gagnrýnni hugsun, félagsfærni og tjáningu nemenda
    • því að taka tillit til reynsluheims þeirra og hugmynda

Faglegt samstarf, starfsþróun og endurmenntun

  • Efla faglegt samstarf innan námsgreina og milli þeirra
  • Hvetja starfsmenn til þess að taka þátt í :
    • Starfendarannsóknum
    • Fræðslufundum
    • Erlendum samstarfsverkefnum (t.d. Erasmus+ og Nord+) ef þau verða í boði
    • Samskipti við aðra skóla
    • Þróunarverkefni: Faglegt lærdómssamfélag í samvinnu við Vogaskóla
    • Fjölbreytt verkefni innanlands

Nám í MS

  • Samþætting námskrár og kennslu við viðmið áfanga
    • Styrkir Samstarfsnefndar MS og félagsmanna í KÍ
    • Öflugt og skipulagt fagstjórastarf
  • Þátttaka allra starfsmanna í „Nám í MS – dögunum“
    • Tveir vinnufundir sem verða haldnir utan MS

Umhverfismál, stjórnsýsla og rekstur

  • Græn skref í ríkisrekstri og grænt bókhald
    • Sótt um viðurkenningu á þriðja græna skrefinu
    • Ná fram markmiðum í stefnuskjali skólans 2019 – 2021
  • Önnur umhverfismál
    • Umhverfisvika á vorönn
    • Hvetja til vistvæns ferðamáta
    • Kolefnissjóður MS (ganga frá regluverki og úthlutun)
  • Stjórnsýsla
    • Innleiðing jafnlaunastaðals
    • Útfæra persónuverndarstefnu
    • Vinnuvernd – áhættumat starfa og lagfæringar á vinnuaðstöðu
    • Aðgerðar áætlun vegna vegna ytra mats á skólastarfi 2019
  • Rekstur
    • Fylgja eftir þriggja ára áætlun um rekstur skólans og nýta fjármagn eins vel og kostur er